Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir lögmaður kom í hlaðvarp Litla Íslands og spjallaði um kaup og leigu atvinnuhúsnæðis.
Samningar eru mikilvægur hluti í rekstri hvers fyrirtækis. Húsnæðiskostnaður er einn af stærstu útgjaldaliðum í rekstri fyrirtækja og því gríðarlega mikilvægt að vanda vel til samningagerðar.
Guðfinna Jóhanna er eigandi Fasteignamáls lögmannsstofu ehf. (www.fasteignamal.is). Hægt er að hafa samband við hana í síma 552 2420 eða í gegnum netfangið gudfinna@fasteignamal.is.